top of page

Sagan um skóna hennar ömmu.

Hún amma Bagga var safnari af lífi og sál.

Hún ferðaðist víða með vinkonum sínum um ævina og fór í bændaferðir og húsmæðraorlof um alla koppa og grundir.

 

Á ferðalögum sínum átti hún það til að detta niður á ótrúlegustu safnhluti og þar á meðal "miniature" skó sem leynast greinilega út um allt í hinum stóra heimi.  Auk þess að safna þessu sérstaka skótauji í öllum stærðum og gerðum þá safnaði hún einnig bjöllum, uglum, skeiðum og fingurbjörgum.

 

Við barnabörnin ólust síðan upp með þá vitneskju að seinna meir myndum við erfa þessi stórmerkilegu söfn hennar ömmu.  

 

Ég, María Krista er elsta barnabarnið og frá upphafi var mér tjáð að skósafnið yrði mitt þegar að því kæmi. Katla myndi fá fingurbjargirnar, Dröfn fengi bjöllurnar, Sigurjón átti að fá uglurnar og svo koll af kolli. 

 

Amma Bagga kvaddi okkur þann 1. febrúar 2013 eftir stutt veikindi og söknum við hennar alltaf jafn mikið. Hennar er oft minnst á meðal okkar barnabarnanna og er gaman að rifja upp sögurnar og venjur hennar ömmu.

 

Skósafnið fallega varð mitt þegar gengið var frá dánarbúinu og hefur það lúrt í kössum hjá mér síðstu þrjú árin enda óhemju stórt og erfitt að koma því fyrir svo vel sé. 

Okkur hjónum datt í hug núna fyrir jólin hvort ekki væri bráðsniðugt að upphefja fallega safnið hennar ömmu og nýta okkur nútímatæknina í að gera það aðgengilegt fyrir alla sem vildu skoða og dáðst að því. Við höfum því myndað töluvert magn af skónum góðu sem telja um rúmlega 520 stk en við völdum úr skemmtilegustu eintökin sem enduðu í  u.þ.b. 225 myndum og viljum deila þeim hér með vinum og vandamönnum.  

Ef allir þessir skór gætu talað þá yrðu eflaust merkilegar sögurnar sem þeir hefðu að segja því þótt amma hafi sjálf safnað skónum flestöllum þá fékk hún oftar en ekki í gjöf frá ferðalöngum sem mundu alltaf eftir ömmu Böggu á ferðum sínum ef þeir rákust á litla skó í minjagripabúðum og hafa þeir því komið víða að.

Látum skóna lifa, njótið vel.

María Krista Hreiðarsdóttir, elsta barnabarn Böggu.

bottom of page